Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir því að ráða verkefnastjóra í Endurmenntun sem jafnframt kemur að kennslu í hestafræðum. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með námskeiðsframboði, námsgögnum og skipulagi í samstarfi við endurmenntunarstjóra
- Þróun og uppbygging námskeiðsframboðs einkum á sviði reiðmennsku og hestafræða
- Samskipti og miðlun upplýsinga til kennara og nemenda
- Samskipti við helstu hagsmunaaðila innan og utan skólans
- Undirbúningur og umsýsla námskeiða
- Þróun námskeiða og kennsla í hestafræði og tengdum greinum við endurmenntun og aðrar deildir LbhÍ
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Háskólapróf í reiðkennslu/tamningum og reynsla af þjálfun hrossa
- Reynsla af verkefnastjórnun
- Reynsla af kennslu og fullorðinsfræðslu
- Góð tölvukunnátta
- Geta til að vinna sjálfstætt og sem hluti af hóp
- Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.04.2022
Nánari upplýsingar veitir
- Guðmunda Smáradóttir, Mannauðs- og gæðastjóri LbhÍ -
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - 433 5000