Bókasafn
Bókasafn Landbúnaðarháskólans
Bókasafn LbhÍ er sérfræðisafn sem þjónar fagsviðum Landbúnaðarháskóla Íslands. Safnið starfar á Hvanneyri og Keldnaholti.
Bókasafn Landbúnaðarháskólans veitir starfsmönnum háskólans, nemendum og öðrum sem til hans leita, aðgang að upplýsingum og heimildum vegna náms, kennslu og rannsókna. Áhersla er lögð á stöðuga þróun við uppbyggingu bóka- og tímaritakosts svo að jafnvægi skapist á milli vísinda- og fræðasviða háskólans. Boðið er upp á aðgang að úrvals gagnasöfnum og rafrænum tímaritum.
- Bókasafn LbhÍ er skráð í Gegni samskrá bókasafna á Íslandi.
- Landbúnaðarháskólinn er með áskrift að E-book Central safni rafbóka.
- LbhÍ er þátttakandi í landsaðgangi að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum.
- Starfsmaður á bókasafni LbhÍ er Anna Björk Haraldsdóttir.
Bókasafn Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri er opið alla daga kl. 08:00 - 16:00. Greiður aðgangur er að margvíslegu fræðsluefni hvort sem er á prentuðu eða rafrænu formi og veitt er ráðgjöf og aðstoð við upplýsingaleit. Annað efni er pantað frá öðrum söfnum í millisafnaláni.
Viðvera starfsmanns er á þriðjudögum frá kl. 13:00 - 15:00 - sumarlokun er frá miðjum júní fram í byrjun ágúst.