Laus störf

Hér má finna lista yfir laus störf hjá Landbúnaðarháskóla Íslands. Frekari upplýsingar má nálgast hjá mannauðsstjóra.
Skoða mannauðsstefnu LBHÍ.

Image

Laus störf

Aðjúnkt og sérfræðingur í bútækni

Laust er til umsóknar starf aðjúnkts og sérfræðings í bútækni við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ). Um er að ræða starf til að sinna kennslu í bútæknifögum við LbhÍ og þróa kennslu í takt við breyttar áherslur í bútækni og skyldum fögum. Starfið getur einnig falið í sér þátttöku í rannsóknum eða greiningarvinnu í verkefnum sem til falla.

Landbúnaðarháskóli Íslands er mennta- og rannsóknastofnun á sviði landbúnaðar, landnýtingar, umhverfisvísinda, landslagsarkitektúrs og skipulagsfræða. LbhÍ veitir bakkalár, meistara og doktorsgráður ásamt því að bjóða upp á starfsmenntanám í búfræði á framhaldsskólastigi.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón og ábyrgð á kennslu í búfræði og búvísindum á fögum er snúa að bútækni s.s. fóðurverkun og tækni, bútækni og byggingar og búvélar og tæki

  • Þróun á kennsluháttum

  • Aðlögun að nýjustu tækni og þróun í bútækni

  • Þátttaka í rannsóknaverkefnum og skýrsluskrifum

  • Önnur tilfallandi verkefni


Hæfniskröfur

  • Meistaragráða í landbúnaðarverkfræði, bútækni, búvísindum eða skyldum greinum

  • Samskiptahæfni, jákvæðni, drifkraftur og geta til að takast á við breytingar

  • Góð tölvukunnátta

  • Góð kunnátta á íslensku og ensku

  • Geta til að vinna sjálfstætt og í hóp

  • Leiðtogahæfileikar og geta til að hvetja aðra til árangurs

  • Hæfni til að móta og miðla framtíðarsýn á sviði kennslumála


Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

 

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.05.2025


Nánari upplýsingar veitir

Björn Þorsteinsson, bjorn@lbhi.is

Sími: 433 5000

Guðmunda Smáradóttir, gudmunda@lbhi.is

Sími: 433 5000

Image
logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image