„Í ljósi alvarlegra ásakana um ritstuld í minn garð, sem birtust í frétt Stundarinnar, þann 27. október 2017, þá tel ég réttast að eftirfarandi komi fram: Nemandi undir minni leiðsögn, slysaðist til að setja mynd í viðauka í BSc ritgerð sinni án þess að vísa nægjanlega vel til heimilda og ekki í samráði við höfund myndarinnar. Þetta var óviljaverk, sem ég tek fulla ábyrgð á, og hafði téð mynd engin áhrif á loka niðurstöður ritgerðarinnar. Myndin var síðan fjarlægð að ósk höfundar. Ég harma að þetta mál sé til umfjöllunar í fjölmiðlum, enda um einfaldan innanhússmiskilning að ræða sem engan veginn er hægt að kalla ritstuld.“
Sæmundur Sveinsson,
Rektor Landbúnaðarháskóla Íslands