Birt hefur verið minnisblað um greining á tveimur hryggjarliðum sem fundust undir steyptum grunni húss á Fálkagötu 24 í Reykjavík í maí 2018 eftir Albínu Huldu Pálsdóttur.
Við fund beinanna vöknuðu upp spurningar um uppruna beinanna og var þeim komið til Albínu til greiningar. Hryggjarliðirnir voru greindir með samanburðarsafni í dýrabeinafornleifafræði sem Albína Hulda Pálsdóttir og Elísa Skúladóttir vinna að og er hýst við Landbúnaðarháskóla Íslands.