Nú þegar júní er að verða hálfnaður er tímabært að upplýsa um fjölda umsókna fyrir komandi skólaár. Samtals bárust LbhÍ 350 umsóknir um nám næsta skólaár, þar af um 160 í starfsmenntanám, búfræði og í garðyrkju.
Alls bárust 85 umsóknir í búfræði, þar af 25 í fjarnám. Búið er að afgreiða umsóknir í staðarnámið og voru 25 nemendur teknir inn að þessu sinni. Alls hafa tíu umsækjendur fyrir fjarnám fengið boð í viðtal.
Í garðyrkjunámið bárust 73 umsóknir og eru flestar þeirra í garðyrkjuframleiðslu. Það er sambærilegt og þegar tekið var síðast inn fyrir tveimur árum.
Rúmlega 80 umsókir bárust í námskeiðaröðina Reiðmanninn í Endurmenntunardeild skólans, að þessu sinni er boðið upp á þrjá kennslustaði; í Kópavogi, á Selfossi og á Sauðárkróki.
Umsóknir á fjórar námsbrautir í BS grunnnámi eru 80 talsins og hefur meginþorri þeirra fengið jákvæð svör við skólavist. Á sama tíma í fyrra bárust skólanum um 75 umsóknir í BS grunnnám.
Í framhaldsnám (MS) bárust 30 umsóknir, þar af 18 í starfsmiðað MS nám í Skipulagsfræðum.
Skólabyrjun
Skólaárið í búfræði hefst mánudaginn 20. ágúst kl. 9:00 með móttöku nýnema og hefst síðan kennsla samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 21. ágúst.
Í háskólanám (BS/MS) verður nýnemadagur sömuleiðis mánudaginn 20. ágúst kl. 9:00 og er skyldumæting fyrir alla nýnema fyrstu þrjá daga skólaársins, 20. -22. ágúst.
Garðyrkjunámið á Reykjum hefst mánudaginn 27. ágúst kl. 9.00 en 20. júní verður móttaka nýmema á Reykjum og síðan í Grasagarði Reykjavíkur daginn eftir og er áríðandi að allir mæti báða dagana.
Frá Nemendagörðum á Hvanneyri
Umsóknafrestur um húsnæði var til 10. júní. Úthlutun herbergja/íbúða á nemendagörðum verður lokið 1. júlí og svör send í tölvupósti, vinsamlegast athugið að staðfesta eða hafna þarf úthlutuninni fyrir 10. júlí. Húsvörður/staðgengill húsvarðar verður í Ásgarði 19. ágúst frá kl. 17 – 20 til að afhenda lykla. Hægt er að hafa samband í síma 843 5341 virka daga á milli 8:00 – 15:30.
Kennsluskrifstofa
Starfsmenn kennsluskrifstofu fara í sumarfrí 6. júlí og verður skrifstofan lokuð til og með 6. ágúst.