Um skipulag bæja eftir Guðmund Hannesson var endurútgefin í kennslubókarformi í upphafi árs 2017. Ritið er fyrsta fræðilega umfjöllunin um skipulagsmál á íslensku, það kom út árið 1916 sem fylgirit með Árbók Háskóla Íslands. Það vakti mikla athygli og er í raun hornsteinn íslenskrar skipulagsmenningar.
Í því fjallar Guðmundur Hannesson um uppbyggingu bæja á Íslandi, greining hans á staðháttum og aðstæðum íbúanna og tillögur að skipulagi bæja eiga jafn vel við nú og þegar textinn var skrifaður fyrst fyrir 100 árum.
Guðmundur sækir viðmið í kenningar sem voru að ryðja sér til rúms erlendis við upphaf tuttugustu aldar og kváðu á um að skipuleggja skyldi bæi með tilliti til heilsu og vellíðanar íbúanna. Hann lagði þó ávallt áherslu á að taka mið af íslenskum aðstæðum, hnattstöðu, veðUmurfari og fleiru. Áhuga vekur að Guðmundur skuli hér fást við vandamál sem nú eru ofarlega á baugi, svo sem þéttingu byggðar, lýðheilsu, íbúðalýðræði og skipulag torga.
Sigríður Kristjánsdóttir stóð fyrir endurútgáfu bókarinnar og ritar formála.
Um skipulag bæja er skyldulesning fyrir alla sem hafa áhuga á skipulagsmálum hér á landi.