Frestur til að skila inn umsóknum um leigu á fjárbúinu Hesti í Borgarfirði rann út þann 1. apríl, en alls bárust tólf umsóknir frá eftirfarandi aðilum:
- Baldur Gauti Tryggvason
- Brynjar Ottesen og Guðný Kristín Guðnadóttir
- Félagsbúið Skálpastöðum ehf
- Gunnar Örn Steinarsson og Ingibjörg Júlía Þorbergsdóttir
- Haraldur Sigurðsson og Linda Sif Níelsdóttir
- Helgi Már Ólafsson
- Jónmundur Magnús Guðmundsson
- Logi Sigurðsson
- Sigrún Harpa Eiðsdóttir og Eyjólfur Kristjónsson
- Símon Bergur Sigurgeirsson og Anna Heiða Baldursdóttir
- Snædís Anna Þórhallsdóttir og Helgi Elí Hálfdánarson
- Unnsteinn Snorri Snorrason
Rektor hefur nú skipað þriggja manna valnefnd til að fara yfir umsóknir og velja þá umsækjendur sem boðið verður að kynna nánar framtíðarsýn sína fyrir rekstur Hestsbúsins. Valnefndina skipa þau Þóroddur Sveinsson, Emma Eyþórsdóttir og Jón Hallsteinn Hallsson. Ráðgert er að nefndin skili tillögum til rektors eigi síðar en 17. apríl en að því loknu mun rektor boða valda umsækjendur á fund til að ræða nánar hugmyndir að rekstri fjárbúsins.