Sumarstörf við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um sumarstörf og er starfstímabilið frá 15. maí til og með 18. ágúst. Um er að ræða útistörf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umhirða útisvæða
- Viðhald fasteigna og/eða annarra innviða
- Umsjón með ungmennum í vinnuskóla Borgarbyggðar
- Almenn garðyrkjustörf, s.s. grassláttur, hirðing, illgresishreinsun, gróðursetning, vélavinna ásamt öðru tilfallandi sem tilheyrir garðyrkju
Hæfniskröfur
- Umsækjendur skulu vera fæddir 2005 eða fyrr (18 ára og eldri)
- Bílpróf
- Vinnuvélaréttindi
- Reynsla af umhirðu útisvæða og/eða garðyrkjustörfum
- Stundvísi og samviskusemi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.03.2023
Nánari upplýsingar veitir
Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri LbhÍ -
Jóhanna Gísladóttir, umhverfisstjóri LbhÍ -