Opnað hefur verið fyrir sumarstörf hjá Landbúnaðarháskóla Íslands
Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) hefur opnað fyrir umsóknir um sumarstörf. 18 ára og eldri (fæddir 2002 eða fyrr) geta sótt um. Starfsstöðvar LbhÍ eru þrjár, á Hvanneyri, á Reykjum í Ölfusi og Keldnaholti í Reykjavík.
Helstu viðfangsefni:
- Umhirða útisvæða
- Umhirða / vökvun í gróðurhúsum
- Viðhald fasteigna eða annarra innviða
- Störf við búrekstur
Hæfniskröfur:
- Bílpróf (kostur en ekki skilyrði)
- Vinnuvélapróf (kostur en ekki skilyrði)
- Reynsla af umhirðu útisvæða og/eða garðyrkjustörfum
- Stundvísi og áreiðanleiki
Vinnutíminn er frá kl 8-16:15 virka daga, frá 15. maí – 20. ágúst.
Hlutverk Landbúnaðarháskóla Íslands er að skapa og miðla þekkingu á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu á norðurslóðum.
Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri LBHÍ,
Umsóknarfrestur er til 01.05.2020 Umsóknir sendist á netfangið: