Landbúnaðarháskóli Íslands hlaut nýverið styrk úr Byggðarannsóknarsjóði uppá 3 milljónir króna fyrir verkefnið Betri búskapur - bættur þjóðarhagur. Verkefnið gengur út á að gera greiningu á þróun í landbúnaði með áherslu á sauðfé og mjólkurframleiðslu og borið saman við nágrannalöndin. Lagt verður mat á framtíðartækifæri til matvælaframleiðslu hér á landi og skoðað hvernig efla megi starfsemi og aðstöðu Landbúnaðarháskólans.
Þrjú verkefni voru styrkt og auk LbhÍ hlutu Háskólinn á Hólum og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi styrki. Nánari upplýsingar um verkefnin er að finna á vef byggðastofnunar.