Skýrsla sem unnin var af Landbúnaðarháskóla Íslands um eflingu kornræktar var kynnt á opnum fundi á Hilton Reykjavík Nordica kl. 11, miðvikudaginn 15. mars.
Í skýrslunni er lögð fram aðgerðaáætlun í 30 liðum og eru meðal annars gerðar tillögur um sérstakan stuðning við kornrækt, bæði við framleiðslu og fjárfestingar í nauðsynlegum innviðum. Markmið verkefnisins var einnig að kanna fýsileika kornsamlags og skilgreina þarfir á lágmarksbirgðum kornvöru í landinu.