Landbúnaðarháskóli Íslands auglýsir stöðu lektors í jarðvegsfræði við deild Náttúru og skóga hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.
Hlutverk deildarinnar er að byggja brú á milli náttúru og samfélags með rannsóknum, kennslu, þjálfun og ráðgjöf á sviði sjálfbærrar landnýtingar og endurheimtar vistkerfa.
Viðkomandi er ætlað að styrkja núverandi starf deildar á sviði rannsókna, kennslu og þjónustu við samfélagið auk þátttöku í alþjóðlegum rannsóknum. Lögð er áhersla á eiginleika jarðvegs, moldina í íslenskri náttúru, mold sem hluta vistkerfa í margvíslegu ástandi og sjálfbæra landnýtingu. Byggð hefur verið upp aðstaða til rannsókna á jarðvegi við skólann.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppbygging alþjóðlega viðurkenndra rannsókna á sviði jarðvegsfræða og skyldra greina
- Birting ritrýndra vísindagreina, öflun rannsóknarstyrkja og virk þátttaka í alþjóðlegu og innlendu samstarfi
- Kennsla og þróun námskeiða á grunn- og framhaldsstigi
- Leiðbeining nemenda í rannsóknarverkefnum
- Þátttaka í kennslu við Landgræðsluskóla GRÓ
- Virk þátttaka í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans
Hæfniskröfur
- Doktorspróf í jarðvegsfræði eða skyldum greinum
- Reynsla af rannsóknum og starfi sem tengjast jarðvegi
- Reynsla af kennslu og áhugi til fjölbreyttrar þekkingarmiðlunar á fræðasviðinu
- Reynsla af þátttöku í rannsóknarverkefnum og öflun rannsóknarstyrkja
- Umsækjandi hafi birt rannsóknir sínar á viðurkenndum alþjóðlegum vettvangi og hafi skýra framtíðarsýn á kennsluháttum, rannsóknum og þróun fræðasviðsins
- Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum
- Íslenskukunnátta er æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.10.2023
Nánari upplýsingar veitir
- Bjarni Diðrik Sigurðsson,
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Sími: 433 5000 - Guðmunda Smáradóttir,
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Sími: 433 5000 - Hlynur Óskarsson
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Sími: 433 5000