Starf lektors í hestafræði við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er laust til umsóknar. LbhÍ býður upp á grunn- og framhaldsnám í hestafræði og myndi viðkomandi koma að uppbyggingu námsins og kennslu, auk þess að sinna rannsóknum tengdum íslenska hestinum.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Byggja upp og leiða alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir í hestafræði með áherslu á íslenska hestinn
-
Birta ritrýndar vísindagreinar, afla rannsóknarstyrkja og taka virkan þátt í alþjóðlegu og innlendu samstarfi
-
Kennsla og þróun námskeiða á grunn- og framhaldsstigi
-
Leiðbeina nemendum í rannsóknaverkefnum
-
Taka virkan þátt í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan háskólans
Hæfniskröfur
-
Doktorspróf í búvísindum, hestafræði eða skyldum greinum
-
Þekking og reynsla af rannsóknum í hestafræði
-
Reynsla af kennslu, ásamt getu og vilja til fjölbreyttrar þekkingarmiðlunar á fræðasviðinu
-
Skýr framtíðarsýn varðandi rannsóknir og þróun fræðasviðsins
-
Geta til að vinna sjálfstætt og sem hluti af hóp
-
Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um Landbúnaðarháskóla Íslands
Landbúnaðarháskóli Íslands er mennta- og rannsóknastofnun á sviði landbúnaðar, landnýtingar, umhverfisvísinda, landslagsarkitektúrs og skipulagsfræða. LbhÍ vinnur að sjálfbærri nýtingu auðlinda, hágæða landbúnaðarframleiðslu og leggur áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni í allri starfsemi sinni. LbhÍ veitir gráður á BSc, MSc og doktorsstigi ásamt því að bjóða upp á starfsmenntanám í búfræði á framhaldsskólastigi. LbhÍ er með tvær starfsstöðvar, á Hvanneyri og á Keldnaholti í Reykjavík.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni kynningarbréf auk vottorðs um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið.
Við ráðningu í störf við LbhÍ er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans.
Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Auglýsing getur gilt í allt að sex mánuði.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.02.2025
Nánari upplýsingar veitir
Guðmunda Smáradóttir,
Sími: 433 5000
Björn Þorsteinsson,
Sími: 433 5000