Laust er til umsóknar starf starfsmenntanámskennara í búfræði við deild Ræktunar og fæðu hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.
Hlutverk Landbúnaðarháskóla Íslands er að skapa og miðla þekkingu á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu á norðurslóðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með áföngum sem tengjast jarðrækt og sjálfbærri nýtingu lands
- Skipulag verklegrar kennslu og verkefna
- Námsmat nemenda
- Vinna sjálfstætt og í hópum við uppfærslu kennsluskráa og gerð nýrra áfanga
- Þátttaka í rannsókna- og nýsköpunarstarfi sem og við við öflun styrkja
- Þátttaka í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans
Hæfniskröfur
- BS próf í búvísindum eða tengdum greinum sem snerta jarðrækt og sjálfbæra nýtingu lands
- Hagnýt reynsla og þekking á ýmsum sviðum landbúnaðar
- Reynsla af kennslu í búfræði
- Áhugi á miðlun þekkingar og kennslufræðum
- Góð íslenskukunnátta
- Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
- Skipulagsfærni
- Færni í mannlegum samskiptum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.10.2023
Nánari upplýsingar veitir
- Erla Sturludóttir,
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Sími: 433 5000 - Guðmunda Smáradóttir,
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Sími: 433 5000