Landbúnaðarháskóli Íslands auglýsir lausar fjórar stöður. Hlutverk Landbúnaðarháskóla Íslands er að skapa og miðla þekkingu á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu á Norðurslóðum. Umsóknarfrestur um stöðurnar er 11. maí 2021. Störfin sem um ræðir eru umhverfisstjóri, launafulltrúi á rekstrarsviði, námsbrautarstjóri í búfræðum og kennari í búfræðum. Sjá nánari upplýsingar hér að neðan.
Umhverfisstjóri
Við óskum eftir að ráða faglegan og metnaðarfullan umhverfisstjóra á rekstrarsvið skólans. Umhverfisstjóri hefur umsjón með uppbyggingu og umhirðu útisvæða skólans á öllum starfsstöðvum hans. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni
- Umsjón með uppbyggingu og viðhaldi útisvæða við allar starfsstöðvar Landbúnaðarháskóla Íslands
- Umsjón með þróun faglegrar stefnu fyrir þann hluta friðlands fugla í Andakíl sem er innan Hvanneyrarjarðarinnar í samstarfi við Umhverfisstofnun
- Mótun og innleiðing stefnu í umhverfismálum
- Umsjón með uppbyggingu og viðhaldi útisvæða á jarðeignum skólans
- Eftirlit með aðkeyptum verklegum framkvæmdum á útisvæðum skólans
- Umsjón með sumarstörfum garðyrkjunnar
- Kennsla
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af umhirðu grænna svæða
- Reynsla af verkstjórn og/eða verkefnastjórnun
- Heiðarleiki og traust í mannlegum samskiptum og nákvæmni í vinnubrögðum
Nánari upplýsingar veita
- Theodóra Ragnarsdóttir, rekstrar- og fjármálastjóri
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - Sími 433-5000
- Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2021
Launafulltrúi á rekstrarsviði
Við óskum eftir að ráða nákvæman og samviskusaman launafulltrúa á rekstrarsvið skólans á Hvanneyri. Um er að ræða 50% stöðu.
Helstu verkefni
- Launaútreikningur og frágangur launa
- Ýmis greiningarvinna og úrvinnsla á sviði kjaramála
- Upplýsingagjöf varðandi launavinnslu
- Samskipti við Fjársýslu ríkisins
- Aðrir verkþættir í samráði við næsta yfirmann
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun er skilyrði
- Þekking og reynsla á launavinnslu er skilyrði
- Þekking og reynsla á ORRA bókhaldskerfi er kostur
- Hæfni til að greina gögn og upplýsingar
- Þjónustulund og góð samskiptahæfni
- Skipulagshæfileikar og nákvæm vinnubrögð
Nánari upplýsingar veita
- Theodóra Ragnarsdóttir, rekstrar- og fjármálastjóri
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - Sími 433-5000
- Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2021
Námsbrautarstjóra í búfræðum
Við óskum eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan starfsmann til að stýra námsbraut í búfræðum. Viðkomandi starfsmaður yrði hluti af deild Ræktunar og fæðu. Búfræði er tveggja ára nám á framhaldsskólastigi. Þungamiðja námsins er á sviði búfjárræktar, jarðræktar og búrekstrar. Markmið búfræðináms er að auka þekkingu og færni nemenda til að takast á við búrekstur og alhliða landbúnaðarstörf. Áhersla er einnig lögð á hvers kyns nýsköpun í búrekstri og nýtingu landsins gæða með sjálfbærni að leiðarljósi.
Helstu verkefni
- Fagleg umsjón með námsbraut í búfræðum
- Bókleg og verkleg kennsla
- Eftirlit með framkvæmd kennslu og frumkvæði að þróun og gæðastarfi
- Skipulag stundatöflu, kennslu og fjárnáms
- Umsjón með stundakennurum
- Umsjón með nemendum frá umsókn til útskriftar
- Kynningarstarf í samvinnu við kynningarstjóra
- Samskipti við fagaðila innanlands og erlendis
Hæfniskröfur
- BS próf í búvísindum og/eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Búfræðipróf æskilegt
- Reynsla af búrekstri æskileg
- Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
- Skipulagsfærni
- Færni í mannlegum samskiptum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku
Nánari upplýsingar veita
- Þóroddur Sveinsson, deildarforseti
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - Sími 433-5000
- Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2021
Kennari í búfræðum
Við óskum eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan kennara í búfræðum við deild Ræktunar og fæðu. Búfræði er tveggja ára nám á framhaldsskólastigi. Þungamiðja námsins er á sviði búfjárræktar, jarðræktar og búrekstrar. Markmið búfræðináms er að auka þekkingu og færni nemenda til að takast á við búrekstur og alhliða landbúnaðarstörf. Áhersla er einnig lögð á hvers kyns nýsköpun í búrekstri og nýtingu landsins gæða með sjálfbærni að leiðarljósi.
Helstu verkefni
- Umsjón með áföngum, kennslu, námsgögnum og skipulagi
- Skipulag verklegrar kennslu og verkefna
- Námsmat nemenda
- Þátttaka í uppbyggingu og þróun náms og skólastarfs
Hæfniskröfur
- BS próf í búvísindum eða sambærileg menntun
- Búfræðipróf æskilegt
- Hagnýt reynsla og þekking á ýmsum sviðum landbúnaðar
- Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
- Skipulagsfærni
- Færni í mannlegum samskiptum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku
Nánari upplýsingar veita
- Þóroddur Sveinsson, deildarforseti
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - Sími 433-5000
- Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2021
Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.