Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir að ráða til starfa kennara við starfs- og endurmenntunardeild skólans. Starfið felst í bóklegri og verklegri kennslu við búfræðibraut skólans á Hvanneyri. Um er að ræða 100% starf. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf þann 1. ágúst næstkomandi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra.
- Umsækjendur hafi búfræðipróf og háskólapróf í búvísindum eða sambærilega menntun.
- Æskilegt er að viðkomandi hafi hagnýta reynslu og þekkingu á ýmsum sviðum landbúnaðar, svo sem í jarðræktargreinum og áhuga á framþróun í greininni.
- Áhersla er lögð á vandvirkni, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Leitað er eftir einstaklingi sem er góður í að miðla þekkingu og lipur í mannlegum samskiptum.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2017. Umsóknir sendist til Kristínar Siemsen,
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðríður Helgadóttir, forstöðumaður starfs-og endurmenntunardeildar, í gsm 843 5314.