Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir að ráða til starfa kennara við starfs- og endurmenntunardeild skólans. Starfið felst í bóklegri og verklegri kennslu búrekstrar- og bútæknigreina við búfræðibraut skólans á Hvanneyri, ásamt kennslu á endurmenntunarnámskeiðum á vegum LbhÍ. Um er að ræða 100% starf. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf þann 1. ágúst næstkomandi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
- Umsækjendur hafi búfræðipróf og háskólapróf í búvísindum eða sambærilega menntun.
- Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af búskap og búrekstri og sé vel að sér í bútækni og búrekstrarfögum.
- Áhersla er lögð á vandvirkni, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Lipurð í mannlegum samskiptum.
- Reynsla af kennslu er nauðsynleg.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2015. Umsóknir sendist til Landbúnaðarháskóla Íslands, b.t. Kristínar Siemsen, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða í tölvupósti
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðríður Helgadóttir forstöðumaður starfs-og endurmenntunardeildar í gsm 843 5314.