Alls sóttu sjö einstaklingar um stöðu rektors við Landbúnaðarháskóla Íslands. Einn umsækjandi hefur dregið umsókn sína til baka. Umsóknarfrestur rann út 5. desember sl.
Nöfn umsækjendanna sjö eru:
Björn Þorsteinsson
Guðmundur Kjartansson
Ívar Jónsson
Jón Örvar G. Jónsson
Sigríður Kristjánsdóttir
Þórunn Pétursdóttir
Háskólaráð LbhÍ ákvað á fundi sínum í morgun að vísa umsóknum til valnefndar en í henni sitja Ásgeir Jónsson, Guðfinna Bjarnadóttir og Torfi Jóhannesson.