Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra og Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskóla Íslands (Lbhí) hafa undirritað samning um þjónustu á sviði rannsókna, þróunarvinnu og sérhæfðrar ráðgjafar fyrir árin 2023-2024.
Samkvæmt samningnum felur ráðuneytið skólanum að vinna að rannsóknum, þróun og nýsköpun á sviði landbúnaðar og matvælaframleiðslu. Fjárframlögum sem fylgja samningnum verður varið til verkefna sem styrkja megináherslur í landbúnaði samkvæmt stefnu stjórnvalda.
- Skilgreind verkefni Lbhí fyrir ráðuneytið eru:
- Efling kornræktar - Hagnýtar ræktunarleiðbeiningar fyrir framleiðendur í kornrækt
- Efling rannsókna á losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaðarstarfsemi
- Greining á stuðningskerfi landbúnaðarins
- Greiningar og rannsóknir á sviði lífrænnar framleiðslu
- Efling garðyrkjuframleiðslu
- Nýting á lífrænum efnum og úrgangi til ræktunar og styrkingar á hringrásarkerfum
- Samspil landbúnaðar og náttúruverndar
Samkvæmt samningnum skal Lbhí jafnframt veita stjórnvöldum ráðgjöf á fræðasviði skólans og eftir atvikum sinna stjórnsýsluverkefnum í umboði matvælaráðuneytisins, svo sem með setu í stjórn stofnana og þátttöku í vinnu starfshópa. Skólinn veitir einnig ráðgjöf við vinnslu einstakra verkefna sem tengjast stefnumótun og fleiri verkefna á sviði ráðuneytisins.