Hvernig líst þér á að taka á móti sumrinu í aldingarði, innan um trópískar plöntur, hátíðarstemningu og fuglasöng, gæða þér á glænýrri uppskeru af grænmeti, kryddplöntum og ýmsu öðru góðgæti? Sumarið er komið í garðskálanum og hægt er að heimsækja hitabeltið í bananahúsinu og pottaplöntusafninu.
Verið velkomin í Garðyrkjuskólann þann 20. apríl 2017, kl. 10:00-17:00. Nemendur garðyrkjuskólans standa fyrir opnu húsi og hátíðahöldum á sumardaginn fyrsta.
Hátíðardagskrá með forseta Íslands verður kl 13:15 þar sem garðyrkjuverðlaun, umhverfisverðlaun Hveragerðis og umhverfisverðlaun Ölfuss 2017 verða afhent.
Dagskrá verður einnig um allt svæði skólans, meðal annars:
Bingó kl. 12:00 og 16:00. Boðið verður uppá heitt kakó og grillaða sykurpúða í garði skólans.
Kynning verður á náminu og skólanum og fólki gefst kostur á að skoða allar byggingar skólans, gróðurhús, tilraunahús, skrúðgarðyrkjuhús, stærstu banana plantekru sem staðsett er í Evrópu osfrv.
Sala á ýmsum framleiðsluvörum garðyrkjunnar, nýsprottið hnúðkál ræktað af nemendum, tómatar, gúrkur, paprikur, kryddjurtir í pottum, afskorin blóm og sumarblóm ofl.
Gefið er út tímarit garðyrkjunema, Vorboðinn, með áhugaverðu efni tengdu garðyrkju á Íslandi og verður því dreift frítt til lesningar.
Fjöldi fyrirtækja og einstaklinga verða með kynningar á vörum sínum tengdum garðyrkju, s.s. bókum, hænsnakofum, vélum, gróðurhúsum ofl.
Kaffi, vöfflur og kræsingar verða seldar í matsal skólans, pylsur, ís og aðrar veitingar verða einnig til sölu á svæðinu.
Ýmsar skemmtilegar uppákomur s.s. andlitsmálning fyrir börn, ratleikur og getraunir og hestar. Einnig gefst börnum kostur á að sá fyrir eigin kryddjurtum og taka með sér heim.
Verkefni nemenda í skrúðgarðyrkju verða til sýnis í verknámshúsinu.