Árlega gefur LbhÍ út listann Nytjaplöntur á Íslandi. Morgunblaðið í dag ræddi við Áslaugu Helgadóttur, prófessor, um þessa útgáfu, en breytingar á listanum eru gerðar í samræmi við tilraunastarfsemina hjá LbhÍ og svo er leitað fanga í tilraunaskýrslum hinna landanna á Norðurlöndum.
Skoðað er hvernig einstök yrki hafa staðið sig í nyrstu héruðum þar, sér í lagi ef engar íslenskar niðurstöður er að hafa.
Árið 2013 bættust við listann yrki aðallega af vallarfoxgrasi, sem er okkar helsta fóðurjurt, rauðsmára, rýgresi og hávingli, í kjölfar nokkuð umfangsmikilla tilrauna, sem hófust 2009 um allt land og í Vestur-Noregi. Sjá hér blaðsíðu úr Morgunblaðinu þar sem rætt er við Álaugu Helgadóttur.