Ráðstefnan Landsýn – vísindaþing landbúnaðarins verður haldin á Hvanneyri í Borgarfirði föstudaginn 16. október 2015, frá klukkan 9.00 til 16.30. Formlegir aðstandendur ráðstefnunnar eru Matís, Veiðimálastofnun, Landgræðsla ríkisins, Skógrækt ríkisins, Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands.
Þetta árið verður ein málstofa fyrir hádegið og tvær aðskildar eftir hádegið.
Byrjað verður á að hlíða á tvö erindi á víðtækum og/eða heimspekilegum nótum um gildi vísinda, menntunar og rannsókna.
Erindunum er ætlað að vekja okkur til umhugsunar um hlutverk okkar og skyldur sem fræðimanna, rannsakenda og starfsmanna í opinnberri þjónustu. Til hvers, fyrir hvern?
Næst fáum við erindi um samskipti fjölmiðla og vísindamanna. Hlutverk beggja og hvernig þessir aðilar geti unnið sama að því að koma niðurstöðum rannsókna á framfæri.
Eftir hádegi verða aðskildar málstofur, þar sem annars vegar verður fjallað um ábyrga notkun vatns og hins vegar um málefni tengd ferðamönnum.
Ráðstefnan Landsýn verður á Hvanneyri þann 16. október 2015, kl. 9:00 til 16:30 - Skráning hér!