Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til rannsókna á sviði húsnæðismála á Íslandi sem Íbúðalánasjóður hyggst úthluta vegna ársins 2017. Styrkirnir standa til boða öllum þeim sem stunda rannsóknir á meistarastigi eða hærra menntunarstigi, án tillits til fræðasviða.
Heildar fjárhæð styrkja á árinu 2017 er allt að 15 milljónir króna.
Verulegur vandi hefur skapast á húsnæðismarkaðnum hér á landi síðustu misseri og eitt af því sem talið er geta komið í veg fyrir að svipað neyðarástand skapist að nýju er efling rannsókna tengdum húsnæðismálum.
Íbúðalánasjóður vill því hvetja alla sem áhuga hafa á húsnæðismálum og hafa gert rannsóknir því tengt á árinu 2017 eða hafa hug á því að gera rannsóknir tengdar húsnæðismálum á árinu 2018 að sækja um á netfangið
Töluverðum upphæðum verður varið til verkefnisins. Veittir verða allt að 15 styrkir á ári og er miðað við að styrkir séu að jafnaði ekki hærri en 1 milljón kr. en það fer þó eftir umfangi verkefna.
Með veitingu styrkjanna er vonast til að fjölga verkefnum og rannsóknum á sviði húsnæðismála sem geta eflt íslenskan húsnæðismarkað og stuðlað að auknu jafnvægi í húsnæðismálum hér á landi.
Hægt er að nálgast reglur um styrkveitingu og umsókn um styrk hér.