Hlutverk sjóðsins er að styrkja nemendur sem lokið hafa háskólanámi frá Landbúnaðarháskóla Íslands til framhaldsnáms erlendis eða til rannsókna í landbúnaðarvísindum eftir því sem stjórn sjóðsins ákveður. Einnig er stjórn sjóðsins heimilt að verðlauna nemendur Landbúnaðarháskólans fyrir framúrskarandi árangur á burtfararprófi.
Umsóknarfrestur er til 29. apríl nk. og skal senda umsóknir á netfangið
Í umsókn skulu koma fram eftirtalin atriði:
- Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang
- Náms- og starfsferill umsækjanda
- Meðmæli
- Heiti verkefnis og stutt hnitmiðuð lýsing á verkefninu, sem nýta má til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk
- Tímaáætlun verkefnis
Styrkúthlutun mun fara fram við skólaslit Landbúnaðarháskóla Íslands þann 31. maí 2024.
Stjórn Blikastaðasjóðs