Út er komin ný grein í vísindatímaritinu Icelandic Agricultural Sciences greinin ber heitið Single tree aboveground biomass models for native birch in Iceland og er eftir þá Þorberg Hjalta Jónsson og Arnór Snorrason sem starfa sem sérfræðingar á Rannsóknastöð skógræktar á Mógilsá.
Íslenskur titill á greininni er „Lífmassaföll fyrir náttúrulegt birki á Íslandi“ og minnir á að birki er ríkjandi trjátegund í náttúrulegu skóg- og kjarrlendi hérlendis. Höfundar settu fram lífmassaföll fyrir íslenskt birki sem byggja á lagskiptu slembiúrtaki úr öllum birkiskógum landsins, sem sýnir hversu umfangmikil gögn liggja að baki rannsóknarinnar. Höfundar mátu áreiðanleika lífmassafallanna með öðru gagnasafni úr íslenskum birkiskógunum og eftir samanburð nokkurra aðferða reyndist einfalt veldisfall áreiðanlegt þegar þvermál birkitrjánna er mælt við jörðu best. Lífmassaföll sem byggja á þvermáli 0.5 m frá jörðu reyndust gefa skekkt gildi fyrir minnstu trén, en hingað til hafa slík föll verið notuð til að reikna standandi lífmassa og kolefnisbindingu íslenskra birkiskóga. Þar með hefur skógræktarfólk fengið enn betri aðferð til að fylgjast með og meta vöxt birkis, okkar helstu innlendu trjátegund. Greinin er því afar mikilvægt innlegg í sífellt aukna þekkingu á íslensku skóglendi.
Greinina má nálgast hér
Þorsteinn Guðmundsson ritstjóri IAS
mynd:Rúv