Nemendur í Byggingafræðinámskeiði hjá Ragnari Frank, lektor við LbhÍ, fá heldur betur að nota kraftana á meðan þau sitja hjá honum námskeiðið. Hópurinn og Ragnar vinna nú að lagningu hluta göngustígs, svokallaðs votlendisgöngustígs, í Móholtinu austan við leikskólann á Hvanneyri.
Nemendur koma af náttúru- og umhverfisfræðibraut annars vegar og af umhverfisskipulagsbraut hins vegar, og eru fimm þýskir skiptinemar þeirra á meðal. Aðspurð um verkefnið segjast þau að námið hér á landi sé ólíkt náminu heima við af því leyti að hér sé meiri áhersla á verkleg verkefni. Í náminu í Þýskalandi hafa þau frekar verið að fylgjast með, en það sé miklu skemmtilegra að fá að taka þátt eins og þau fengu að gera þegar fréttaritari leit við hjá þeim.
Þýsku skiptinemarnir, Anja, Jenni og Bettina, við vinnuna
Þetta er í fyrsta sinn sem nemendur hafa þurft að leysa verkefni sem þetta í Byggingafræðinámskeiðinu hjá Ragnari. Almenn ánægja er meðal nemendanna sem segja kennslustundirnar hafa verið fjölbreyttar, verkefnin óvænt en á sama tíma mjög skemmtilegt að vinna þau.
„Þetta eru verkefni sem muna koma til með að skilja eitthvað eftir, ég kem til að muna eftir þessu. Þarna fáum við tækifæri til að gera mistök og læra af þeim. Það mun nýtast okkur í starfi seinna meir.“ Segir Guðni Rúnar Jónasson, nemandi í umhverfisskipulagi.
Bera þurfti stóra drumba til að leggja yfir mýri
Lagning göngustígsins um svæðið er þriggja ára verkefni og er vinnan því einungis á byrjunarstigi. Ragnar Frank hefur umsjón með verkefninu sem er aðgerð í endurheimt votlendis. Hann vonast til að svæðið, sem mest megins eru tjarnir og mýri, verði vel nýtt af heimamönnum, gestum og sérstaklega börnum á Hvanneyri þegar búið verður að leggja 500 metra göngustíginn.
Byrjað var á fylla upp í skurði og tjarnir á svæðinu fyrir um þremur árum síðan. Samhliða endurheimt votlendis vinnur Hlynur Óskarsson, deildarforseti umhverfisdeildar LbhÍ, að rannsóknarverkefni á svæðinu sem miðar að því að skoða áhrif hækkunar grunnvatns í votlendi og gróðurframvinduna.
Drumbarnir komnir á sinn stað
Ragnar Frank, til vinsti, leiðbeinir nemendum
Göngustígurinn verður um 500 metrar og mun liggja í hring