Síðastliðinn þriðjudag kynntu nemendur af umhverfisskipulagsbraut (Oft kallað umsk og talað um umskara) Landbúnaðarháskóla Íslands, landslagsgreiningarverkefni sem þau unnu um Hvalfjarðarsveit fyrir skipulagsnefnd sveitarfélagsins. Þá leiddu nemendur nefndina í gegnum hugmyndir þeirra af möguleikum og sóknarfærum sveitarfélagsins. Það er áhugavert að eiga samtal samfélags og háskóla, á því græða allir.
Á myndinni má sjá hluta nemenda ásamt skipulagsnefnd og umhverfis – og skipulagsfulltrúa Hvalfjarðarsveitar og hugmyndirnar eru í baksýn.