Málþing um áhrif mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni á gróður og lífríki verður haldið mánudaginn 23. mars nk. í fundarsalnum Kötlu á 2. hæð á Hótel Sögu. Málþingið stendur frá klukkan 13.00 - 17.00.
Tilgangur málþingsins er að miðla upplýsingum um bein og óbein áhrif mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni og hvernig eftirliti með menguninni er og verður háttað.
Málþingið er haldið á vegum Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Bændasamtaka Íslands, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Hljóðupptökur og glærur vegna ofangreindra erinda og umræðna verða aðgengilegar eftir málþingið á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, www.anr.is og vef Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra www.avd.is
Dagskráin er eftirfarandi:
13.00 - 13.30 Ávarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
13.30 - 13.50 Almennt um efnamengun frá eldgosinu
- Veðurstofa Íslands
13.50 - 14.10 Loftmengun
- Umhverfisstofnun
14.10 - 14.30 Mengun yfirborðsvatns
- Jarðvísindastofnun HÍ
14.30 - 14.50 Áhrif á lífríki í ám og vötnum
- Veiðimálastofnun
14.50 - 15.10 Áhrif á villt dýr og vistkerfi
- Náttúrufræðistofnun
15.10 - 15.30 Kaffi
15.30 - 15.50 Áhrif á gróður og fóður fyrir búfé
- Landbúnaðarháskóli Íslands
15.50 - 16.10 Áhrif á búfé
- Keldur
16.10 - 16.30 Áhrif á skógrækt
- Skógræktin
16.30 - 17.00 Almennar umræður
Fundarstjóri er Halldór Runólfsson, ráðgjafi hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu
Myndin er fengin af vef Jarðvísindastofnunar Íslands.