Starfsmaður óskast í 100% starf til þess að sinna fasteignum og útisvæðum Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Húsvarsla og aðstoð við rekstrarsvið og kennsluskrifstofu
- Umhirða fasteigna, innviða og útisvæða
- Viðhald og eftirlit með nemendagörðum LbhÍ
- Viðhaldsverkefni innan- og utanhúss
- Grassláttur, trjáklippingar, umhirða gróðurbeða og almenn útistörf
- Umsjón með snjómokstri og aðgengismálum að skólanum
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Iðnmenntun æskileg (s.s. pípulagnir, smíði, rafvirkjun, skrúðgarðyrkja)
- Vinnuvélaréttindi skilyrði
- Haldgóð reynsla af ýmsum verklegum framkvæmdum
- Þekking og reynsla af viðhaldi fasteigna og útisvæða
- Þjónustulund og góð samskiptahæfni
- Samstarfsvilji og frumkvæði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og hafa gert.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2022
Nánari upplýsingar veitir
Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri -
Kristín Theodóra Ragnarsdóttir, rekstrar- og fjármálastjóri -