Aðstoðarmanneskja í rannsóknum við Landbúnaðarháskóla Íslands
Laust er til umsóknar starf aðstoðarmanns í rannsóknum sem tengjast losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaðarstarfsemi. Starfið er við deild Ræktunar og fæðu hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.
Hlutverk Landbúnaðarháskóla Íslands er að skapa og miðla þekkingu á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu á norðurslóðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg aðstoð í rannsóknum og kennslu við LbhÍ í umhverfisfræðum sem tengjast búfjárrækt og jarðrækt.
- Vinna sjálfstætt við mælingar, gagnasöfnun og viðhald á rannsóknatækjum.
- Þátttaka í mótun nýrra rannsóknaverkefna og vinnu við öflun styrkja til þeirra.
- Taka virkan þátt í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans
Hæfniskröfur
- Að lágmarki BS próf í búvísindum, líffræði eða tengdum greinum sem nýtast í loftslagsrannsóknum
- Almenn þekking á íslenskum landbúnaði
- Reynsla af rannsóknavinnu og bústörfum æskileg
- Áhugi á rannsóknum og miðlun þekkingar
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Þóroddur Sveinsson, Deildarforseti -
Guðmunda Smáradóttir, Mannauðs- og gæðastjóri -