Lektor í skógfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands
Laust er til umsóknar starf lektors í skógfræði við deild Náttúru og skóga hjá Landbúnaðarháskóla Íslands með áherslu á ræktun og nýtingu skóga og tengingu við sjálfbæra landnýtingu. Viðkomandi er ætlað að styrkja núverandi starf deildar á sviði rannsókna, kennslu og þjónustu við samfélagið. Hlutverk deildarinnar er að byggja brú á milli náttúru og samfélags með rannsóknum, kennslu, þjálfun og ráðgjöf á sviði sjálfbærrar landnýtingar og endurheimtar vistkerfa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppbygging alþjóðlega viðurkenndra rannsókna á sviði skógfræði
- Birting ritrýndra vísindagreina, öflun rannsóknarstyrkja og virk þátttaka í alþjóðlegu og innlendu samstarfi
- Kennsla og þróun námskeiða á grunn- og framhaldsstigi
- Leiðbeining nemenda í rannsóknarverkefnum
- Virk þátttaka í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans
Hæfniskröfur
- Doktorspróf í skógfræði eða skyldum greinum
- Reynsla af rannsóknum og þróun sem tengjast nýskógrækt, sjálfbærri nýtingu skóga eða loftslagsáhrifum.
- Reynsla af kennslu og áhugi til fjölbreyttrar þekkingarmiðlunar á fræðasviðinu
- Reynsla af þátttöku í rannsóknarverkefnum og öflun rannsóknarstyrkja
- Umsækjandi hafi birt rannsóknir sínar á viðurkenndum alþjóðlegum vettvangi og hafi skýra framtíðarsýn á rannsóknum og þróun fræðasviðsins
- Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum
- Íslenskukunnátta er æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Bjarni Diðrik Sigurðsson, deildarforseti Náttúru og skóga -
Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri -