Læra um hönnun og lagningu skógarvega

Í síðustu viku fór fram á Hvanneyri námskeiðið Hönnun og lagning skógarvega  en það er valnámskeið sem boðið er upp á á skógfræði- og landgræðslubraut. Þátttakendur voru hvort tveggja nemendur í LbhÍ, af skógfræðibraut og af umhverfisskipulagsbraut, og starfsmenn innan skógræktargeirans, alls 25 manns. Námskeiðið var haldið í samstarfi við Skógfræðingafélag Íslands.

Hönnun og lagning skógarvega er mikilvægur hluti nytjaskógræktar. Rétt hönnun og lagning er bæði forsenda hagkvæmrar skógarnýtingar og ekki síður mikilvæg til að lágmarka neikvæð áhrif af skógarhögginu á t.d. skriðuhættu og jarðvegseyðingu. Einn færasti sérfræðingur Noregs í hönnun og lagningu skógarvega Jan Bjerketvedt var kennari á námskeiðinu og fór hann með nemendur í Stálpastaðaskóg í Skorradal til að geta sýnt þeim raunveruleg dæmi um skógarvegi.

Þann dag var grenjandi rigning og tilvalinn dagur fyrir nemendur að átta sig á mikilvægi réttrar lagningar skógarvega með tilliti til staðbundinnar bleytu og einnig með tilliti til mikils yfirborðsvatns. Lagning skógarvega í brattlendi getur verið erfið og var því fróðlegt að sjá hvernig skógarvegirnir á Stálpastöðum voru að standast þær kröfur sem norðmenn gera til skógarvega.

Björgvin Eggertsson, skógfræðingur við LbhÍ, tók meðfylgjandi myndir í kennslutímanum í rigningunni í Skorradal.

Háskóli Íslands

 

Háskóli Íslands

Háskóli Íslands
Hópurinn samankominn í sólinn á Hvanneyri

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image