Albína Hulda Pálsdóttir greinir frá rannsóknum sínum er snúa að uppruna íslensku sauðkindarinnar á alþjóðlegri ráðstefnu í París. Mynd aðsend
Albína Hulda Pálsdóttir dýrabeinfornleifafræðingur og sérfræðingur við LbhÍ kynnti fyrstu niðurstöður rannsókna sinna og Dr. Jóns H. Hallssonar prófessors við LbhÍ, Dr. Sanne Boessenkool við Háskólann í Osló og samstarfsfólks á uppruna íslensku sauðkindarinnar.
Ráðstefnan var haldin að þessu sinni í Náttúrugripasafninu í París en hún var haldin nú í áttunda sinn. Þar koma saman sérfræðingar í dýrabeinafornleifafræði, fornerfðafræði, próteinmengjagreiningu og svipfarsgreiningu (ICAZ Archaeozoology, Genetics, Proteomics and Morphometrics (AGPM) Working Group).
Heiti fyrirlestursins var „Víkingaaldarsauðfé á eyjum Norður Atlantshafs: Uppruni og arfur (e. Viking sheep of the North Atlantic: Origins & genetic heritage)“. Mikill áhugi var sýndur þeim frumniðurstöðum sem fram komu í fyrirlestri Albínu um sauðfé í Norður Atlantshafi en á ráðstefnunni voru samankomnir margir af helstu sérfræðingum í fornDNA greiningum á dýrum.
Tengt efni