Landbúnaðarháskóli Íslands og Bændasamtök Íslands bjóða til opins fundar á Hvanneyri föstudaginn 24. nóvember kl. 14:00 - 16:30 í Ásgarði.
Þann 14. nóvember síðastliðinn úrskurðaði EFTA dómstóllinn að íslenskum yfirvöldum væri óheimilt að banna innflutning á fersku kjöti, eggjum og afurðum úr ógerilsneyddri mjólk frá Evrópu til Íslands. Ljóst er að þessi dómur mun hafa veruleg áhrif á íslenskan landbúnað. Jafnframt er mikilvægt að umræða um þetta mál byggist á faglegum grunni. Því boða LbhÍ og BÍ til opins fundar til að fjalla um niðurstöður dómsins og hugsanleg áhrif hans. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Boðið verður upp á kaffi í fundarhléi.
Hvernig viltu hafa kjötið þitt? - Dagskrá
14:00 – 14:10 Setning – Sæmundur Sveinsson rektor LbhÍ
14:10 – 14:30 Innflutningur á ferskum landbúnaðarafurðum til Íslands – staðan og horfur - Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri BÍ
14:30 – 14:50 Innflutningseftirlit – hlutverk MAST og mismunur á eftirliti eftir uppruna innflutnings – Þorvaldur H. Þórðarson, framkvæmdastjóri inn- og útflutningsmála hjá MAST
14: 50 - 15:05 Felst áhætta í innflutningi ferskra landbúnaðarafurða? - Ólafur Valsson, dýralæknir
15:05 – 15:20 Kaffihlé
15:20 – 15:40 Smitsjúkdómar sem geta borist með innfluttum ferskum landbúnaðarafurðum – Vilhjálmur Svansson dýralæknir á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum á Keldum
15:40 – 16:00 Lýðheilsa – áhrif á heilbrigði manna og dýra – Karl G. Kristinsson yfirlæknir Sýklafræðideildar Landspítalans
16:00 – 16:30 Umræður og fyrirspurnir
Fundarstjóri er Charlotta Oddsdóttur, dýralæknir og lektor við LbhÍ.