Landsvirkjun býður til opins fundar um hvernig fyrirtæki geta unnið gegn losun gróðurhúsaloftslagstegunda og gegn loftslagsbreytingum. Fundurinn verður haldinn í Gamla bíó miðvikudaginn 4. mars, kl 14-17. Í tilefni af 50 ára afmæli stendur Landsvirkjun fyrir samtali við þjóðina með opnum fundum og eru allir boðnir velkomnir.
Meðal fyrirlesara eru tveir starfsmenn Landbúnaðarháskóla Íslands, þeir Bjarni Diðrik Sigurðsson, prófessor við LbhÍ, og Hlynur Óskarsson, deildarforseti umhverfisdeildar LbhÍ. Erindi Bjarna ber heitið Loftslagsbreytingar og áhrif þeirra, hvað er til ráða? og erindi Hlyns er Endurheimt votlendis. Nánari dagskrá er að finna hér.