Í júli sl. heimsótti umhverfisskipulagsbrautina, Mateja Kregar Trar aðstoðarprófessor frá í Háskólanum í Ljubljana í Slóveníu. Ferðaðist hún um landið í þrjár vikur og skissaði upp myndir. Hún dvaldi í fjóra daga á Hvanneyri þar sem Helena Guttormsdóttir brautarstjóri umhverfisskipulagsbrautar tók á móti henni. Hún skildi eftir litla sýningu, teikniæfingar til að þjálfa rýmistilfinningu. Verkin hafa nú verið hengd upp í Ársal á Hvanneyri og eru gestir hvattir til að kynna sér sýninguna.