Stjórn Landsambands hestamannafélaga (LH) sótti heim LBHÍ á Hvanneyri og kynntist starfseminni á sviði hestatengds náms á öllum skólastigum. Hópurinn var á ferð um Borgarfjörð og var tekið á móti honum í aðalbyggingu skólans á Hvanneyri þar sem brautarstjórinn Helgi Eyleifur Þorvaldsson sagði frá búfræðináminu. En þar er löng hefð fyrir reiðmennsku- og tamningaáföngum og er árlega keppt um Morgunblaðsskeifuna.
Sigríður Bjarnadóttir brautarstjóri hestafræði fór yfir áherslur og framtíðarsýn þeirrar brautar en Hestafræði er innihaldsríkt, alhliða nám sem byggist á blöndu af bóklegu námi og verklegum áföngum. Nemandi öðlast traustan þekkingargrunn á flestum sviðum hestafræða með sérstaka áherslu á íslenska hestinn.
Þá fór Randi Holaker verkefnastjóri Endurmenntunar sem sér um Reiðmanninn sem er einingabær námskeiðsröð ætluð fróðleiksfúsum reiðmönnum og áhugafólk um reiðmennsku sem vill auka þekkingu sína og færni í reiðmennsku, hrossarækt og almennun hestahaldi. Námskeiðin eru kennd um allt land og tók Randi við keflinu í upphafi síðasta árs og kynnti fyrir hópnum umfangið og framtíðarsýn.
Að loknum kynningum var haldið að Mið-Fossum, hestamiðstöð LBHÍ þar sem aðstaðan var skoðuð og rætt við bústjórann Guðbjart Þór Stefánsson. Þá kenna Guðbjartur og Randi einnig hestatengda áfanga í búfræði og hestafræði.
Við þökkum innilega fyrir skemmtilega heimsókn og gaman að taka á móti hópnum og kynna starfsemi okkar og hugmyndir til framtíðar.