Landslagsarkitekinn Mateja Kregar heimsótti landslagsarkitektabraut LBHÍ í síðustu viku. Heimsóknin var í gegnum Erasmus styrkjaáætlunina í Slóveníu. Hún fundaði með starfsmönnum, skoðaði aðstöðu námsins hér og skildi eftir eigin verk og nemendaverkefni.
Farsælt Erasmus samstarf hefur verið milli þessara háskóla og námsleiða. Mateja kom hér einnig árið 2015 og þá setti hún ásamt Helenu Guttormsdóttur upp sýningu á verkum nemenda. Helena fór svo til Ljubljana árið 2016, var með fyrirlestra og tók þátt í kennslu. Þá hafa verið gagnkvæm Erasmus nemendaskipti milli skólanna. Mjög ánægjulegt er að sjá hvað Erasmus gefur kost á farsælu alþjóðastarfi og uppbyggingu faglegra tengsla og vináttu.