Sendiherra Bretlands á Íslandi, Michael Nevin heimsótti Landbúnaðarháskólann og ræddi við Ragnheiði I. Þórarinsdóttur rektor og Christian Schultze rannsóknar- og alþjóðafulltrúa. Ásamt sendiherra var með í för Brita Bjargardóttir upplýsingarfulltrúi sendiráðsins í Reykjavík, Gavin Crockard hjá utanríkis- og samveldisskrifstofu sendiráðsins og Páll Stefánsson forstöðumaður alþjóðaviðskipta.
Hópurinn kynnti sér starfsemi skólans og ræddi mögulega samstarfsfleti í aðkallandi málefnum eins og lífrænni ræktun og framleiðslu, hringrásarhagkerfi, loftslagsmálum og landbúnaðarmálum í víðum skiningi.
Við þökkum kærlega fyrir heimsóknina.