Háskóladagurinn fór fram um síðustu helgi á höfuðborgarsvæðinu. Landbúnaðarháskólinn var sem fyrr með kynningu á náminu sem í boði er, á Háskólatorgi HÍ. Nemendur af öllum háskólabrautum LbhÍ tóku á móti gestum og sögðu áhugasömum frá náminu og lífinu í LbhÍ. Takk fyrir komuna!
Næstu tvær vikur halda allir háskólar landsins í valda framhaldsskóla utan höfuðborgarsvæðis til að hitta nemendur. Dagskráin er sem hér segir:
- Ísafjörður, MÍ 7. mars kl. 11 - 12:30
- Akranes, FVA 8. mars kl. 10 - 11:30
- Grundarfjörður, FSN 8. mars kl. 14 - 15:30
- Selfoss, FSU 14. mars kl. 10 - 11:30
- Höfn, FAS 15. mars kl. 10 - 11:30
- Egilsstaðir, ME 16. mars kl. 10 - 11:30
- Akureyri, VMA 17. mars kl. 9:30 - 11
- Akureyri, MA 17. mars kl. 13 - 14:30
- Sauðárkrókur, FNV 18. mars kl. 9:45 - 11:15
Vonandi náum við að hitta alla þá sem vilja kynna sér áhugavert og hagnýtt nám sem í boði er í LbhÍ!
Hér er hluti kynningarhópsins sem tók þátt í Háskóladeginum 5. mars