Guðríður Helgadóttir forstöðumaður starfs- og endurmenntunardeilda Landbúnaðarháskóla Íslands var sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu af forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum þann 1. janúar s.l. Hana hlaut Guðríður fyrir störf á vettvangi íslenskrar garðyrkju og miðlun þekkingar. Við óskum Guðríði hjartanlega til hamingju með heiðurinn.
Við veitinguna á Bessastöðum á nýársdag. Mynd skjáskot af forseti.is