Í dag var ritað undir samkomulag um akademískt gestastarf við dr. Starra Heiðmarssongrasafræðing. Um er að ræða stöðu gestalektors við Umhverfisdeild. Starri lauk BS prófi í líffræði frá HÍ árið 1992 og doktorsprófi í flokkunarfræðilegri grasafræði frá Uppsalaháskóla árið 2000. Starri hefur frá námslokum starfað við Náttúrufræðistofnun Íslands, fyrst sem sérfræðingur en frá árinu 2006 sem fagsviðsstjóri í grasafræði. Rannsóknir Starra beinast helst að fléttufungu Íslands þ.e. tegundafjölbreytni og útbreiðslu fléttna í íslenskum vistkerfum auk rannsókna á flokkunarfræði og þróunarsögu fjörusvertuættar. Starri hefur komið að kennslu í grasafræði hjá LbhÍ um nokkurt skeið. Það er mikill fengur að fá Starra til liðs við skólann með þessum hætti. Á meðfylgjandi mynd eru f.v. Ágúst Sigurðsson, rektor, Starri Heiðmarsson og Hlynur Óskarsson, deildarforseti Umhverfisdeildar.