Landbúnaðarháskóli Íslands hefur verið í góðu samstarfi við Fulbright á Íslandi undanfarin ár en hlutverk þeirra er að stuðla að möguleikum á samskiptum milli Bandaríkjanna og Íslands fyrir nemendur og kennara. Fjölbreyttir styrkir eru í boði og tók Landbúnaðarháskóli Íslands m.a. á móti Prof Marie Hendrickson from Missouri University í heila önn á vegum Fulbright í upphafi árs 2020.
Belinda Theriault, framkvæmdastjóri Fulbright Iceland sótti skólann heim á Hvanneyri og kynnti þau fjölmörgu tækifæri fyrir framtiðarverkefni milli Bandaríkjana og Íslands. "Dvöl Fulbright fræðimanns hjá LBHÍ á síðasta skólaári var mjög vel heppnuð og við hlökkum til að sjá aukið samstarf Fulbright við LBHí á komandi árum" segir Belinda um samstarfið.
Christian Schultze alþjóðafulltrúi skólans tók á móti Belindu ásamt Ragnheiði I. Þórarinsdóttur rektor, Guðmundu Smáradóttur mannauðs- og gæðastjóra, Helenu Guttormsdóttur lektor og Samaneh Sadat Nickayin, nýr lektor í landslagsarkitektúr. "Landbúnaðarháskólinn og Fulbright stefna á að vinna saman og efla íslenskt-bandaríska samstarfi til framtíðar enn frekar" segir Christian að lokum.