Vísindadagur LbhÍ er viðburðaröð þar sem fagdeildirnar þrjár, Ræktun & fæða, Náttúra & skógur og Skipulag & hönnun, hafa vettvang til að kynna verkefni sín og nýjustu rannsóknir fyrir samstarfsmönnum og nemendum.
Viðburðurinn er haldinn einu sinni á önn og hófst á því að Christian Schultze, rannsókna- og alþjóðafulltrú fór yfir rannsóknir í Landbúnaðarháskólanum í tölum ásamt því að stýra dagskránni sem fram fór rafrænt í gegnum fjarfundabúnað.
Jón Hallsteinn Hallsson, prófessor, Ræktun & fæða flutti erindi um Stjórn blómgunar í byggi. Helena Guttormsdóttir, dósent, Skipulag & hönnun flutti erindi sitt Aðlaðandi bæir, samkeppnishæfni og umhverfisvæn endurnýjun í Norrænum þéttbýlum. Að lokum fjallaði Ása Aradóttir, prófessor, Náttúra & skógur um verkefnið Endurheimt birkivistkerfa á 21. öld — áskoranir, leiðir og ávinningur (BirkiVist).