Búnaðarsamböndum stendur til boða að fá til sín þriggja til fjögurra klukkustunda fræðsluerindi um jarðvinnslu og áburðargjöf á vegum Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands gegn hóflegu gjaldi.
Haukur Þórðarson kennari við Landbúnaðarháskóla Íslands mun mæta á svæðið og veita ráðgjöf og fræðslu um mikilvægi vandaðrar jarðvinnslu í landbúnaði, beitingu jarðvinnsluvéla, skynsemi við beitingu þeirra og stillingar og vinnu við jarðvinnslutækni. Einnig mun hann ræða um áburð, áburðardreifingu og nýtingu áburðar. Gefið verður gott svigrúm fyrir umræður og fyrirspurnir.
Hægt er að beina fyrirspurnum til Endurmenntunar í síma 433 5000 eða senda tölvupóst á netfangið