Endurmenntun LBHÍ býður upp á fimm námskeið í sauðfjársæðingum á nokkrum stöðum á landinu til að koma til móts við sem flesta starfandi sauðfjárbændur og öll sem hafa áhuga á að starfa eða starfa nú þegar við sauðfjársæðingar.
Í bóklega hluta námskeiðsins er farið yfir sögu sauðfjársæðinga, æxlunarfærum sauðkinda lýst og greint frá helstu atriðum varðandi æxlunarlíffræði þeirra. Áhersla er lögð á að fjalla um sæðingar, hvernig best er að standa að þeim, hvenær rétti sæðingatíminn er og í hverju samstilling gangmála er fólgin.
Í verklega hlutanum er meðferð sæðis og verklag við sæðingar kennd í fjárhúsi þar sem einnig er rætt um smitvarnir og eiga nemendur að námskeiði loknu að geta sætt ær og sagt til um það hvernig bestum árangri verður náð.
Þorsteinn Ólafsson dýralæknir kennir á námskeiðinu og hefur hann áralanga reynslu af kennslu sauðfjársæðingar á vegum Endurmenntunar LBHÍ.
Sjá nánar á vef Endurmenntunar LBHÍ, https://endurmenntun.lbhi.is/saudfjarsaedingar/.