Búið er að taka upp kortagátt í Uglu vegna greiðslu skráningargjalda og því eru greiðsluseðlar ekki sendir í heimabanka. Nýnemar sem búnir eru að fá samþykktarbréf þurfa að skrá sig inn á sinn aðgang á samskiptagáttinni og greiða skráningargjöldin þar í gegn, https://ugla.lbhi.is/namsumsoknir/. Eldri nemendur sem hyggjast halda áfram sínu námi á komandi skólaári skrá sig inn á sinn aðgang á www.ugla.lbhi.is og velja þar bláa greiðsluborðann efst á forsíðunni til að ganga frá greiðslunni.
Eindagi skráningargjalda er 4. júlí. Kennsluskrifstofa óskar sem fyrr eftir því að nemendur sem ekki ætla að þiggja skólavist á komandi skólaári láti vita sem fyrst á
Nánari upplýsingar hjá kennsluskrifstofu í síma 433 5000 eða kennsluskrifstofa hjá lbhi.is