Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir því að ráða deildarfulltrúa framhaldsnáms á kennsluskrifstofu skólans. Viðkomandi mun m.a. hafa umsjón með framhaldsnámi (PhD og MSc). Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta og upplýsingagjöf til nemenda og kennara
- Umsjón með framhaldsnámi (PhD og MSc)
- Halda utan um lokaverkefni/verkefnavinnu í samvinnu við leiðbeinendur
- Samræming og samþætting kennslu í samvinnu við kennara
- Samstarf við utanaðkomandi aðila er tengjast leiðbeiningu lokaverkefna eða kennslu
- Vinna við ýmis kerfi og gagnagrunna sem tengjast nemendabókhaldi, upplýsingamiðlun, framkvæmd kennslu, prófa og útskrift nemenda
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Doktorsgráða er kostur
- Haldgóð reynsla af verkefnastjórnun og upplýsingamiðlun
- Reynsla og þekking á notkun upplýsingakerfa og gagnagrunna
- Góð samskiptahæfni
- Heiðarleiki og nákvæmni í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar 2022 Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 10.01.2022
Nánari upplýsingar veitir Álfheiður B Marinósdóttir -