Ráðstefna Evrópudeildar alþjóðlegu vistheimtarsamtakanna SER (Society for Ecological Restoration) hefst 9. september og til 13. Ráðstefnan er haldin á Hilton Reykjavik Nordica. Á ráðstefnum samtakanna kemur saman breiður hópur sem fæst við endurheimt vistkerfa á öllum stigum, s.s. hönnuðir, framkvæmdaraðilar, ráðgjafar, vísindafólk, landeigendur og stefnumótunaraðilar. LbhÍ stendur að ráðstefnunni með Landgræðslunni, Landvernd og Landgræðsluskólanum.
Hér má finna nánari upplýsingar um ráðstefnuna sere2018.org
Fimmtudaginn 13. sept verður svo haldið opið "loftlagstorg" undir yfirskriftinni Atvinnulífið og loftslagið þar sem árangur í íslensks atvinnulífs í loftslagsmálum verður ræddur og framtíðin í þeim málum. Loftlagstorgið verður haldið á Hótel Hilton Nordica kl 10:30-12:30 og er opið öllum meðan húsrúm leyfir. Hlekkur á viðburðinn er hér.